Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Úrskurður nr. 82/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 1. mars 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 82/2016

Í stjórnsýslumáli nr. KNU15100023

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, sem barst kærunefnd útlendingamála þann 21. október 2015, kærði […], ríkisborgari […] (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 28. september 2015, um að synja henni um endurnýjun á dvalarleyfi vegna náms.

Kærandi gerir þá kröfu að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og kæranda veitt dvalarleyfi hér á landi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 30. gr. laga nr. 96/2002, um útlendinga, og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kæranda var fyrst veitt dvalarleyfi vegna námsdvalar með gildistíma frá 10. september 2012 til 1. febrúar 2013. Kærandi sótti um dvalar- og atvinnuleyfi námsmanns 4. október 2012 og var leyfið útgefið 25. október 2012 með gildistíma til 1. febrúar 2013. Kærandi sótti aftur um dvalarleyfi vegna námsdvalar þann 21. desember 2012 og var leyfið gefið út 14. janúar 2013 með gildistíma til 1. júlí 2013. Kærandi sótti á ný um dvalar- og atvinnuleyfi námsmanns 8. apríl 2013 og var leyfið útgefið 15. apríl 2013 með gildistíma til 1. júlí 2013. Síðastnefnda leyfið hefur verið endurnýjað þrívegis með gildistíma til 9. júní 2014. Kærandi sótti um framlengingu þess leyfis 30. maí 2014 en var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. júlí 2014. Kærandi kærði þá ákvörðun til innanríkisráðuneytisins 20. ágúst 2014 en afturkallaði kæruna þann 16. september 2014. Kærandi lagði fram nýja umsókn um dvalarleyfi vegna námsdvalar þann 16. september 2014 og var leyfið útgefið 2. október 2014 með gildistíma til 1. febrúar 2015. Kærandi sótti um dvalar- og atvinnuleyfi námsmanns þann 7. janúar 2015 og var leyfið gefið út 23. mars 2015 með gildistíma til 1. júlí 2015. Kærandi sótti um endurnýjun þess leyfis þann 17. júlí 2015. Þeirri umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 28. september 2015. Það er synjun þeirrar umsóknar sem er til umfjöllunar í kærumáli þessu.

Framangreind ákvörðun Útlendingastofnunar var kærð til kærunefndar útlendingamála þann 21. október 2015, líkt og áður segir. Kærunefnd óskaði samdægurs eftir athugasemdum stofnunarinnar vegna kærunnar ef einhverjar væru auk afrits af gögnum málsins. Umbeðin gögn bárust kærunefnd þann 4. nóvember 2015. Með bréfi, dags. 4. nóvember 2015, var kæranda veittur 14 daga frestur til að leggja fram greinargerð vegna kærumálsins. Sérstök greinargerð barst ekki kærunefnd önnur en sú sem lögð var fram samtímis kæru. Viðbótargögn bárust frá kæranda þann 19. nóvember 2015. Með bréfi, dags. 17. febrúar 2016, var kærandi hvattur til að leggja fram frekari gögn varðandi námsferil sinn á skólaárinu 2015-2016. Þau gögn bárust kærunefnd þann 24. febrúar 2016.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Ákvörðun Útlendingastofnunar byggir á því að kærandi uppfylli ekki skilyrði b-liðar 1. mgr. 12. gr. e útlendingalaga, sbr. 4. mgr. 12. gr. laganna, þar sem kærandi hafi ekki lokið a.m.k. 75% af fullu námi og þannig ekki sýnt fram á viðunandi námsárangur til endurnýjunar dvalarleyfis vegna náms. Kærandi hafi ekki lokið neinum einingum á vorönn 2015 og hafi ekki verið skráð í Háskóla Íslands á vorönn 2015 og fullnægi því ekki framangreindum skilyrðum laga um útlendinga. Á þeim grundvelli synjaði stofnunin umsókn kæranda um endurnýjun dvalarleyfis vegna náms.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi gerir þá kröfu að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og kæranda veitt dvalarleyfi hér á landi.

Í greinargerð kæranda kemur fram að umsókn kæranda hafi verið hafnað þar sem hún hafi ekki skilað nægjanlegum einingafjölda á vorönn 2015. Ástæða þess hafi verið að kærandi […]. […]. Af þessum sökum hafi kærandi ekki getað sinnt námi sínu.

Kærandi kveðst vera skráð í fullt nám við Háskóla Íslands á núverandi skólaári og hún sinni því af dugnaði og festu. Þá vinni kærandi […]. Kærandi hafi búið á Íslandi í þrjú ár, eigi hér vini, stundi nám og sé í starfi. Kærandi kveðst vilja dvelja áfram á Íslandi til þess að sinna námi sínu sem hún sé í af heilum hug.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Mál þetta lýtur að því hvort Útlendingastofnun hafi verið rétt að synja umsókn kæranda frá 17. júlí 2015 um endurnýjun dvalarleyfis á grundvelli 4. mgr. 12. gr. e laga um útlendinga nr. 96/2002.

Í 4. mgr. 12. gr. e laga um útlendinga kemur fram að dvalarleyfi vegna náms samkvæmt ákvæðinu skuli að jafnaði ekki veitt til lengri tíma en sex mánaða í senn. Heimilt er að endurnýja dvalarleyfi vegna náms á námstíma ef útlendingur fullnægir áfram skilyrðum 1. og 2. mgr. 12. gr. e og getur sýnt fram á viðunandi námsárangur. Námsárangur telst samkvæmt ákvæðinu fullnægjandi hafi útlendingur lokið a.m.k. 75% af fullu námi. Við fyrstu endurnýjun dvalarleyfis telst námsárangur viðunandi hafi útlendingur lokið a.m.k. 50% af fullu námi. Samkvæmt 2. mgr. 12. gr. e laga um útlendinga telst fullt nám vera 100% samfellt nám á háskólastigi, iðnnám eða það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Þá teljast einstök námskeið ekki til náms. Í máli þessu var um það að ræða að kærandi sótti um framlengingu dvalarleyfis vegna náms og þurfti hún því að sýna fram á a.m.k. 75% námsárangur.

Samkvæmt gögnum málsins er bárust kærunefnd er kærandi skráður stúdent við Háskóla Íslands skólaárið 2015-2016. Á haustönn 2015 lauk kærandi 26 ECTS einingum af þeim 30 einingum sem teljast til fulls háskólanáms á hverri önn. Kærandi lauk því u.þ.b. 87% af fullu námi á haustönn. Að ofangreindu virtu er það því við svo búið mat nefndarinnar að kærandi uppfylli nú skilyrði áðurnefndrar 4. mgr. 12. gr. e laga um útlendinga til endurnýjunar dvalarleyfis vegna náms. Verður hin kærða ákvörðun því felld úr gildi og lagt fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi skv. 4. mgr. 12. gr. e laga um útlendinga að uppfylltum öðrum skilyrðum laganna.

ÚRSKURÐARORÐ

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi skv. 4. mgr. 12. gr. e laga um útlendinga að uppfylltum öðrum skilyrðum laganna.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate of Immigration is instructed to issue a residency permit to the appellant in accordance to Paragraph 4 of Article 12 of the Act on Foreigners, subject to other conditions of the Act.

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Vigdís Þóra Sigfúsdóttir Pétur Dam Leifsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum